Fljótlegt og gott lasagna með hvítri sósu
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 1 pakki nautahakk
- 1 pakki ferskar lasagna plötur
- ½ rauðlaukur, smátt skorinn
- 3 meðal stórar gulrætur
- 2 hvítlauksgeirar
- 1 stór krukka (750 ml) pastasósa
- 1 msk ítölsk kryddblanda
- ½ tsk salt
- 1 tsk pipar
- þ.b. 1 stór lúka spínat, sjá aðferð
- 300 g Philadelphia rjómaostur
- 1 egg
- 100 g rifinn ostur
Aðferð:
- Byrjið á því að kveikja á ofninum og stilla á 200°C.
- Skerið laukinn, og gulræturnar smátt niður. Steikið grænmetið á pönnu þangað til laukurinn er orðinn vel mjúkur.
- Bætið þá hakkinu út á pönnuna og steikið það þangað til það er fulleldað.
- Skerið hvítlauksgeirana smátt niður og steikið þá létt með hakkinu. Bætið sósunni út á pönnuna. Kryddið sósuna svolítið eftir smekk.
- Setjið rjómaost í skál og hrærið hann þangað til hann verður mjúkur. Bætið þá 1 eggi saman við og hrærið saman.
- Takið ykkur frekar stórt eldfast mót, setjið þunnt lag af kjötsósu í botninn og leggið svo lasagna plötur yfir. Setjið 1/3 af hvítu ostasósunni yfir lasagna plöturnar. Takið 1 góða lúku af skoluðu+þerruðu spínati og dreifið yfir. Setjið svo kjötsósu+lasagna plötur+hvítasósu yfir og endurtakið það svo í þriðja skiptið.
- Dreifið rifnum osti yfir og bakið inn í ofni í 25 mín.
Vinó mælir með Adobe Reserva Cabernet Sauvignon með þessum rétt.