Marokkóskar kjötbollur með sætkartöflu & bulgur salati
Fyrir 3-4
Hráefni:
Ungnautahakk, 550 g
Brauðraspur, 20 g
Hvítlauksrif, 3 stk
Egg, 1 stk
Rúsínur, 20 g
Nautakraftur, 1 tsk / Oscar
Fetaostur í kryddlegi, 50 g
Kóríander, 10 g
Sæt kartafla, 500 g
Bulgur, 1,5 dl
Harissa, 1,5 tsk
Spínat, 50 g
Heslihnetuflögur 35 g / eða ristaðar möndluflögur
Þurrkuð trönuber, 35 g
Majónes, 70 ml / Japanskt helst
Sýrður rjómi 10%, 70 ml
Aðferð:
- Stillið ofn á 180 °C með blæstri
- Hrærið saman majónes og sýrðan rjóma. Pressið 1 hvítlauksrif og bætið helmingnum út í. Smakkið til með salti, pipar og meiri hvítlauk ef þarf. Geymið í kæli.
- Saxið rúsínur og kóríander og pressið 2 hvítlauksrif. Setjið í skál ásamt ungnautahakki, brauðraspi, eggi, nautakraft, fetaost og 1-1,5 tsk af flögusalti. Notið hendurnar til að blanda öllu vel saman. Það er gott taka smá klípu af blöndunni og steikja á pönnu til þess að smakka og bæta við meira salti ef þess þarf.
- Skerið sæta kartöflu í bita og veltið upp úr harissu, smá olíu og salti. Dreifið yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni um 30 mín eða þar til kartöflurnar eru búnar að taka fallegan lit og eru mjúkar í gegn.
- Eldið bulgur eftir leiðbeiningum á umbúðum.
- Mótið 20 jafn stórar bollur úr kjötblöndunni og brúnið þær vel á öllum hliðum. Lækkið hitann svo aðeins á pönnunni og steikið bollurnar áfram þar til þær eru eldaðar í gegn.
- Saxið spínat og setjið í skál ásamt sætum kartöflum, bulgur, heslihnetuflögum og trönuberjum. Blandið öllu vel saman og smakkið til með smá salti.
- Berið fram marokkóskar kjötbollur með sætkartöflu og bulgur salati.