Ofnbakað lambalæri í kryddjurtahjúp með smjörbökuðum kartöflum og trönuberjasalati
Fyrir 4
Hráefni fyrir lambalærið
Lambalæri, 2 kg
Hvítlaukur, 15 g
Rósmarínlauf fersk, 6 g
Timianlauf fersk, 3 g
Ólífuolía, 40 g
Dijon sinnep, 1 msk
Sojasósa, 1 msk
Flögusalt, 2 tsk
Aðferð
- Stillið ofn á 200 °C með yfir og undirhita.
- Maukið saman rósmarín, timian, hvítlauk, ólífuolíu, sinnep, sojasósu og salt þar til mjúk smyrjarnleg blanda hefur myndast.
- Þerrið kjötið og smyrjið svo vel með kryddjurtablöndunni. Stingið kjöthitamæli í þykkasta part kjötsins.
- Leggið lambið á ofngrindina í miðju ofnsins og setjið álpappírsklædda ofnplötu í næsta grind fyrir neðan til þess að grípa vökvann sem lekur úr lambinu.
- Bakið í um 90 mín eða þar til kjöthitamælir sýnir 54°kjarnhita. Ef toppurinn á kjötinu fer að brúnast of mikið yfir eldunartímann er gott að leggja álpappír yfir kjötið.
- Takið lambið úr ofninum og látið hvíla undir álpappír í 15 mín áður en það er skorið.
Hráefni fyrir kartöflurnar
Kartöflur, 1 kg
Smjör, 40 g
Salt, 40 g
Vatn, 1 líter
Aðferð
- Setjið 1 líter af vatni í pott ásamt saltinu og náið upp suðu. Skerið kartöflur í bita og sjóðið í 8 mín.
- Sigtið vatnið frá kartöflunum, dreifið þeim yfir hreint eldhússtykki og leyfið að gufa í nokkrar mín.
- Bræðið smjörið við vægan hita í pottinum og veltið kartöflunum svo upp úr smjörinu þar til kartöflurnar eru allar vel huldar smjöri.
- Dreifið kartöflunum yfir ofnplötu með bökunarpappír og setjið inn í neðstu grind í ofninum þegar um 20 mín eru eftir af eldunartíma lambsins.
- Bakið kartöflurnar við 200 ° yfir og undirhita í 20 mín en breytið í blástur þegar lambið er tekið úr ofninum. Bakið áfram í um 15-20 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar fallega gylltar, stökkar að utan en mjúkar að innan. Hrærið nokkrum sinnum í kartöflunum yfir bökunartíman svo þær brenni
Hráefni fyrir sósuna
Rjómi, 500 ml
Sýrður rjómi 10%, 2 dl
Kjúklingakraftur (duft), 2 tsk / Oscar
Lambakraftur (duft), 4 tsk / Oscar
Sojasósa, 4 tsk
Provance krydd, 4 tsk
Sósulitur eftir smekk
Sósuþykkir eftir smekk
Aðferð
Setjið allt hráefnið fyrir sósuna saman í pott og látið malla við vægan hita í 20-30 mín. Smakkið til með salti ef þarf. Notið sósujafnara og sósulit eftir smekk.
Hráefni fyrir salatið
Salatblanda, 80 g
Fetaostur í kryddlegi, 80 g
Rauðlaukur, ¼ stk lítill
Graskersfræ, 5 msk
Trönuber þurrkuð, 5 msk
Smátómatar, 100 g
Aðferð
- Sneiðið rauðlauk mjög þunnt, skerið tómata í bita og rífið salatblöndu eftir smekk.
- Setjið öll hráefnin fyrir salatið saman í skál ásamt svolitlu af olíunni af fetaostinum og blandið vel saman.