Ofnbakaður kjúklingur og grænmeti
Hráefni
2 kjúklingabringur
½ tsk paprika krydd
Salt og pipar
½ tsk oreganó
1 meðal stór sæt kartafla
250 g sveppir
½ rauðlaukur
2 hvítlauksgeirar
3 dl rjómi
2 tsk kjúklingakraftur frá Oscar
200 g rifinn ostur með pipar
Ferskt rósmarín
Aðferð
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C og undir og yfir hita.
- Skerið kjúklingabringurnar í tvennt þvert og langsum yfir bringurnar, kryddið þær með salt, pipar, papriku kryddi og oreganó, leggið til hliðar á meðan grænmetið er gert tilbúið.
- Flysjið kartöfluna og skerið hana í litla bita. Skerið sveppina, hver svepp í 4 hluta. Skerið rauðlaukinn og hvítlaukinn smátt niður, og setjið allt saman í frekar stórt eldfast mót.
- Setjið kjúklingakraft út í rjómann, hrærið og hellið yfir grænmetið. Dreifið u.þ.b. 100 g af rifna ostinum yfir, kryddið með salt, pipar og oreganó, hrærið örlítið í.
- Leggið kjúklingabringurnar yfir og bakið inn í ofni í 20 mín. Setjið þá restina af ostinum yfir kjúklinginn og bakið þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn og osturinn byrjaður að verða gullinn (u.þ.b. 15 mín í viðbót). Skreytið með fersku rósmarín.