Ostabakki og innbakaður brie
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- blámyglu ostur
- Hvítmyglu ostur
- Innbakaður brie með jarðaberja sultu
- Kex að eigin vali
- Jarðaber
- Brómber
- Græn vínber
- Grænar ólífur
- Chorizo
- Hráskinka
- Innbakaður brie með jarðaberjasultu:
- Brie
- Smjördeig
- Jarðaberjasulta
- Egg
Aðferð:
- Afþýðið eina lengju af smjördeigi.
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
- Fletjið það út svo það stækki örlítið (svo það nái utan um ostinn).
- Setjið olíu í eldfast mót.
- Skerið ostinn í tvennt (þvert), setjið neðri hlutann af ostinum ofan á smjördeigið, setjið góða matskeið af sultu á ostinn og setjið efri partinn af ostinum létt ofan á, setjið aðra góða matskeið af sultu yfir.
- Takið í hornin á smjördeiginu og klípið þau saman yfir ostinum eins vel og hægt er (ekki klessa hornin ofan í ostinn, þá sekkur smjördeigið ofan í sultuna og festist ekki saman), hornin geta losnað í ofninum, eins og gerðist hjá mér en það er í góðu lagi og að mínu mati mjög fallegt.
- Setjið ostinn í eldfast mót.
- Hrærið egg saman í skál og penslið eggi á smjördeigið.
- Bakið inn í ofni í um það bil 20 mín eða þar til deigið er orðið vel púffað og byrjað að brúnast.
Vinó mælir með Adobe Reserva Rose með þessum rétt.