Grænmetis lasagna með sveppum, spínati og vel af osti
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
Fersk lasagna blöð
500 g sveppir
1 rauðlaukur
1 msk ólífu olía
70 g tómatpúrra
450 ml einföld pastasósa
1 dós hakkaðir tómatar
100 g spínat
250 g kotasæla
Rifinn mosarella ostur (mjög gott að kaupa rúllu af mosarella og rífa hálfa niður)
1 msk þurrkað oreganó
1-2 tsk þurrkað basil
1 tsk þurrkað timjan
½ tsk þurrkað rautt chillí
½ tsk salt
½ tsk pipa
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
- Skerið sveppina niður í bita, þannig að áferðin líkist grófu hakki. Steikið þá á þurri pönnu á meðal heitri pönnu og setjið klípu af salti yfir. Fljótlega byrjar vökvi að koma út úr sveppunum.
- Skerið rauðlaukinn smátt niður og setjið út á pönnuna með sveppunum ásamt ólífuolíu og steikið þar til vökvinn af sveppunum hefur gufað upp.
- Setjið því næst er tómatpúrru bætt á pönnuna, pastasósu og hökkuðum tómötum. Kryddið með oreganó, basil, timjan, chilli, salti og pipar. Steikið áfram á pönnunni í um það bil 10 mín eða þar til sósan er orðin þykk og kraftmikil.
- Setjið þunnt lag af sósu í botninn og setjið lasagna blöð yfir sósuna. Setjið 2-3 msk af kotasælu yfir, ásamt spínati og rifnum mosarella. Endurtakið þessi skref 2-3x og toppið með rifnum mosarella.
- Bakið inn í ofni í 20 mín. Leyfið lasagnanu að taka sig í 10 mín áður en það er skorið.
Vinó mælir með Cune Crianza með þessum rétt.