Tortellini pasta í ferskri tómatsósu
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 2 pakkar tortellini fyllt með tómat og mozzarella frá Pastella
- ½ rauðlaukur smátt skorinn
- 1 bakki kastaníu sveppir (150 g)
- 2 msk smjör
- 2 hvítlauksgeirar
- 6 tómatar
- Salt og pipar eftir smekk
- ¼ tsk papriku krydd
- ¼ tsk þurrkaðar chillí flögur
- 250 ml grænmetissoð
- 100 g spínat
- Parmesan ostur eftir smekk
- Ferkst basil eftir smekk
Aðferð:
- Setjið vatn í meðal stóran pott, saltið vatnið og setjið 2 msk af olíu í vatnið og látið suðuna koma upp.
- Skerið laukinn smátt niður og steikið hann á pönnu upp úr smjöri eða olíu á meðan þið skerið niður sveppina. Bætið sveppunum á pönnuna og steikið þá upp úr smjöri.
- Skerið hvítlaukinn smátt niður eða pressið hann með hvítlaukspressu og bætið honum á pönnuna.
- Skerið tómatana niður og bætið þeim út á pönnuna og steikið létt.
- Kryddið með salti, pipar, papriku kryddi og þurrkuðum chillí flögum.
- Bætið grænmetissoði á pönnuna (líka hægt að nota vatn og grænmetistening), bætið því næst spínatinu á pönnuna. Leyfið að malla svolítið á meðan þið setjið pastað í pottinn og látið það sjóða samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Þegar það er soðið takið þá einn bolla af pastasoði frá, hellið svo restinni af vatninu af því og setjið pastað á pönnuna. Ef ykkur finnst vanta svolítið meira soð í réttinn, bætið þá viðeigandi magni af pastavatninu á pönnuna. Blandið öllu saman, rífið parmesan ost og ferska basil yfir.
Vinó mælir með Lamberti Rose Spumante með þessum rétt.