Tortellini með kjúkling og sveppum í hvítlauksosta rjómasósu.
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
350 g Tortellini fyllt með osti
3 kjúklingabringur
Ólífu olía
Salt og pipar
½ laukur
250 g sveppir
50 g smjör
3 hvítlauksgeirar
½ l rjómi
Kryddostur með hvítlauk
Ferskt basil
Parmesan ostur
Aðferð:
- Sjóðið tortellini samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Skerið kjúklingabringurnar smátt niður og steikið upp úr ólífu olíu og salt og pipar þar til eldað í gegn. Takið kjúklinginn af pönnunni en ekki þrífa pönnuna.
- Skerið laukinn smátt niður og bætið út á pönnuna og steikið. Skerið sveppina frekar gróft niður og bætið á pönnuna ásamt smjöri. Steikið þar til mjúkir í gegn. Skerið hvítlaukinn smátt niður eða pressið með hvítlaukspressu út á pönnuna, steikið létt og bætið svo rjómanum strax út á. Leyfið að malla í smá stund við vægan hita.
- Rífið kryddostinn niður og bætið út á pönnuna og látið hann bráðna saman við. Bætið kjúklingnum aftur út á pönnuna. Smakkið til með salti og pipar.
- Setjið pastað í fallegt ílát, hellið sósunni yfir og berið fram með fersku basil og parmesan.
Vinó mælir með Adobe Reserva Pinot Noir með þessum rétt.