Pizza með Ítölsku salami, rauðlauk, rósmarín og heimalagaðri pizzasósu.
Fyrir 2-3
Hráefni
Brauðhveiti, 420 g + smá meira til að vinna með
Sykur, 10 g
Borðsalt, 7 g
Þurrger, 7 g
Ólífuolía, 2 msk
Vatn, 280 g
San Marzano tómatar, 1 dós
Basil, 1 stilkur + lauf
Hvítlauksrif, 1 stk lítið
Hunang, 1 tsk
Piccante, Sterk Ítölsk salami, 75 g / Tariello, fæst í Hagkaup
Rauðlaukur, ½ lítill
Rósmarín, 1 stór stilkur
Mozzarellakúla, 1 stk
Chilifræ, eftir smekk
Parmesanostur, eftir smekk
Þessi uppskrift er svakalega einföld og skilar manni æðislegum pizzabotni en hún krefst smá þolinmæði þar sem deigið þarf að taka sig í 2 daga áður en pizzurnar eru bakaðar. Allt vel þess virði samt!
- Hitið vatnið í um 30-40 sek í örbylgjuofni.
- Setjið hveiti, sykur, salt og þurrger í matvinnsluvél og látið vélina ganga í stuttum hrinum í 4-5 skipti þar til allt hefur samlagast vel. Hellið vatni og ólífuolíu yfir hveitiblönduna og látið vélina ganga samfleytt í 15 sek þar til deigkúla hefur myndast. Látið vélina svo ganga í 15 sek til viðbótar.
- Stráið smá hveiti á borð og takið deigið úr matvinnsluvélinni. Hnoðið deigið í stutta stund og myndið úr því kúlu. Spreyið eða smyrjið stóra skál með olíu og færið deigið í skálina. Hyljið með matarfilmu og setjið í kæli í 2 sólarhringa.
- Takið deigið úr kæli 2 klst áður en baka á pizzurnar. Skiptið deiginu í tvennt og myndið úr því 2 kúlur. Færið kúlurnar í olíusmurðar skálar og hyljið með matarfilmu. Látið deigið jafna sig við stofuhita í amk 2 klst.
- Stillið ofn á 250 °C með yfir og undirhita
- Setjið smá olíu í lítinn pott og stillið á miðlungshita. Pressið hvítlauksrif saman við og steikið í um 1 mín eða þar til hvítlaukurinn er farinn að ilma.
- Kremjið San Marzano tómatana með höndunum og bætið út í pottinn ásamt vökvanum úr dósinni, basil stilknum og 1 tsk af hunangi. Náið upp suðu og lækkið svo hitann aðeins svo það malli vel í pottinum. Látið malla í um 10 mín og smakkið svo til með salti.
- Setjið bökunarplötu inn í ofninn til þess að hitna á meðan botnarnir eru mótaðir.
- Notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 25 cm hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu sem hefur myndast yfir síðustu 2 daga ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist mun betur. Færið botninn yfir á bökunarpappír
- Sneiðið salami í þunnar sneiðar, saxið rauðlauk gróflega og týnið rósmarín laufin af stilknum og saxið gróflega.
- Smyrjið sósu á botninn og rífið mozzarellaost yfir. Dreifið salami yfir ásamt rauðlauk, rósmarín, chiliflögum eftir smekk og rífið að lokum parmesanost yfir.
- Takið heita bökunarlötuna úr ofninum og dragið pizzuna varlega á plötuna. Bakið pizzuna í næstefstu grind í ofni í um 8-10 mín eða þar til osturinn er farinn að bubbla og kantarnir eru búnir að lyftast og taka fallegan lit