Margaritu pizza á baquette brauði
Uppskrift: Karen Guðmunds
Hráefni:
- 1 stórt baquette brauð
- 1 tómatar í dós (ekki kryddaðir)
- 1 poki af mozzarella osti
- 1/2 bolli parmesan ostur, raspaður
- Ferskt basil, eftir smekk
- 2 – 3 tómatar, skornir í sneiðar (fer eftir stærð)
- 3 msk. olífuolía
- 3 hvítlauksrif
- 1/2 tsk. oregano
- 1/2 tsk. basilkrydd
- 1/2 tsk. chilliflögur
Aðferð:
Hitið ofnin á 180C.
Skerið baquette brauðið í tvennt og síðan aftur í tvennt svo þið eruð með 4 brauðsneiðar allt í allt.
Hitið olíu á pönnu á miðlungsháum hita. Bætið öllum kryddum á pönnuna (hvítlauk, oregano, basilkryddi og chilliflögum). Leyfið að eldast í um það bil 5 mínútur.
Smyrjið kryddolíunni af pönnunni ofan á brauðið og komið fyrir á ofnplötu. Bakið við 180C í 5 mínútur inn í ofni á undir og yfir hita.
Bætið við tómötum á sömu pönnu og leyfið að eldast á lágum hita í 10 mínútur.
Þegar tómatsósan er tilbúin, setjið á brauðin ásamt mozzarella osti og sneiddum tómötum og bakið í 10 til 15 mínútur inn í ofni eða þar til brauðið er orðið vel krispý. Ég setti grillið á ofnin síðustu 3-4 mínúturnar til að fá brauðið extra krispý.
Takið úr ofninum, setjið ferskt basil á brauðin og raspið parmesan osti yfir.
Vinó mælir með Lamberti Pinot Grigio með þessum rétt.