Pizza með hráskinku, ruccola, sveppum, avocadó og mosarella perlum
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 250 ml volgt vatn
- 2 msk olífu olía
- 7 dl hveiti (ég setti 5 dl hveiti og 2 dl heilhveiti)
- 2 tsk þurrger
- 2 tsk salt
Álegg:
- Pizza sósa
- Rifinn pizza ostur
- 8 sveppir
- Parma skinka
- Ruccola salat
- Avocadó
- Mosarella perlur
- Pipar
Aðferð:
- Setjiði gerið út í vatnið og hrærið saman.
- Blandiði hveiti og salt saman í skál.
- Hellið gerblöndunni út í hveitið með hrærivélina í gangi.
- Bætið ólífu olíunni útí og hnoðið saman þangað til gott pizzadeig hefur myndast, það á ekki að vera of klístað en auðvelt að hnoða það.
- Leyfið deiginu að hefast í a.m.k 1 klst.
- Stillið ofninn á 240°C, skiptið deiginu í tvo hluta og fletjið deigin út.
- Setjið pizzusósu og pizzaost á deigið, skerið sveppina og raðið á botnana, bakið þá inn í ofni í ca. 10 mín eða þar til osturinn er byrjaður að brúnast og kantarnir á deiginu líka.
- Takið pizzuna út úr ofninum og raðið parmaskinku, ruccola, mosarella perlum og toppið með svörtum pipar.
Vinó mælir með Ramon Roqueta Reserva með þessum rétt.