Ómótstæðileg pizza með humar, parmesan og hvítlauksolíu.
Gerir 2 pizzur
Hráefni
Brauðhveiti, 420 g + smá meira til að vinna með
Sykur, 10 g
Borðsalt, 7 g
Þurrger, 7 g
Ólífuolía, 6 msk
Vatn, 280 g
San Marzano tómatar, 1 dós
Oregano þurrkað, 1 tsk
Hvítlauksrif, 3 stk
Hunang, 1 tsk
Humar (skelflettur og hreinsaður), 300 g
Rauðlaukur, ½ lítill
Steinselja, 5 g
Mozzarella ostur (rifinn), 180 g
Sítróna, 1 stk
Klettasalat, 20 g
Parmesanostur, eftir smekk
Aðferð
- Hitið vatnið í um 30-40 sek í örbylgjuofni þar til það er álíka heitt og notalegt bað.
- Setjið hveiti, sykur, salt og þurrger í matvinnsluvél og látið vélina ganga í stuttum hrinum í 4-5 skipti þar til allt hefur samlagast vel. Hellið vatni og 2 msk af ólífuolíu yfir hveitiblönduna og látið vélina ganga samfleytt í 15 sek þar til deigkúla hefur myndast. Látið vélina svo ganga í 15 sek til viðbótar.
- Stráið smá hveiti á borð og takið deigið úr matvinnsluvélinni. Hnoðið deigið í stutta stund og myndið úr því kúlu. Spreyið eða smyrjið stóra skál með olíu og færið deigið í skálina. Hyljið með matarfilmu og setjið í kæli í 2 sólarhringa.
- Takið deigið úr kæli 2 klst áður en baka á pizzurnar. Skiptið deiginu í tvennt og myndið úr því 2 kúlur. Færið kúlurnar í olíubornar skálar og hyljið með matarfilmu. Látið deigið jafna sig við stofuhita í amk 2 klst.
- Stillið ofn á 250 °C með yfir og undirhita
- Þerrið humarinn með eldhúspappír og steikið hann svo upp úr smá smjöri og pressuðu hvítlauksrifi, setjið humarinn á disk og geymið til hliðar.
- Setjið smá olíu í lítinn pott og stillið á miðlungshita. Pressið hvítlauksrif saman við og steikið í um 1 mín eða þar til hvítlaukurinn er farinn að ilma.
- Kremjið San Marzano tómatana með höndunum og bætið út í pottinn ásamt vökvanum úr dósinni, oregano og 1 tsk af hunangi. Náið upp suðu og lækkið svo hitann svo það malli hraustlega í pottinum. Látið malla í um 15 mín og smakkið svo til með salti.
- Setjið bökunarplötu inn í ofninn til þess að hitna á meðan botnarnir eru mótaðir.
- Notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 25-30 cm hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu sem hefur myndast yfir síðustu 2 daga ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist mun betur.
- Smyrjið sósu á botninn og rífið mozzarellaost yfir. Dreifið humar yfir pizzuna ásamt rauðlauk og bakið svo í neðstu grind í ofni í um 8-10 mín.
- Setjið 4 msk af ólífuolíu í litla skál og pressið 1 hvítlauksrif saman við. Hitið í nokkrum stuttum hrinum í örbylgjuofni þar til hvítlaukurinn er farinn að ilma.
- Saxið steinselju og rífið sítrónubörk (varist að taka hvíta undirlagið með því það er beiskt á bragðið). Dreifið steinselju og sítrónubörk yfir pizzuna þegar hún kemur úr ofninum ásamt smá salti, ríflegu magni af parmesan, góðri lúku af klettasalati og svolítilil hvítlauksolíu.