Salat með grilluðum kjúkling og stökkri parmaskinku
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 4 stk. úrbeinuð kjúklingalæri
- Kjúklingakrydd
- 8 sneiðar parmaskinka
- 2 dl kirsuberjatómatar
- 200 g ruccola salat
- 2 avocadó
- ¼-½ lítil gul melóna
- 1 dl mosarella perlur
- Graskersfræ, ristuð
- Salt og pipar
Dressing:
- 1 dl Balsamikedik
- 1 dl ólífuolía
- 2 tsk. dijon sinnep
- 2 msk. ferskt basil, hakkað
- Salt og pipar
Aðferð:
- Stillið ofninn á 200°C. Kryddið kjúklingalærin og bakið þau í ofni í u.þ.b. 20 mín. eða þar til þau eru bökuð í gegn. Skerið tómatana í helminga og raðið á eldfast mót, setjið ólífuolíu og salt yfir, bakið inn í ofni þar til þeir eru búnir að mýkjast vel. Steikið parmaskinkuna á pönnu á báðum hliðum þar til stökk.
- Raðið ruccola-salati á diska, skerið avocadóin í helminga, svo í sneiðar, skerið melónuna í bita og raðið á diskana.
- Ristið graskersfræ á pönnu og raðið á diskana líka ásamt mosarellaperlum.
- Skerið kjúklinginn í sneiðar og parmaskinkuna líka, raðið á diskana ásamt tómötunum.
- Útbúið dressinguna með því að setja öll innihaldsefni í krukku, hristið vel saman og setjið yfir salatið eftir smekk. Kryddið svo með salti og pipar eftir smekk.