Salat með risarækjum í hvítlauksmarineringu
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 1 pakki risarækjur (um það bil 12 rækjur)
- 2 hvítlauksgeirar
- kóríander krydd
- lime
- salt og pipar
- ólífuolía
- 250 g spínat
- 1 mangó
- 2 lítil avocadó
- 5-7 kirsuberja tómatar
- 1 lítil krukka fetaostur
- lúka af kóríander
- ½ rauður chilli
Aðferð:
- Setjið risarækjurnar í skál, kreystið hvítlaukinn yfir með hvítlaukspressu, rífið börkinn af 1 lime, kryddið með salt, pipar og kóríander kryddi. Hellið góðum slurk af ólífuolíu yfir eða u.þ.b. 2-3 msk og blandið vel saman. Látið marinerast í hálftíma ef þið eigið hann til en annars bara á meðan salatið er útbúið.
- Skolið spínatið, þerrið og raðið því á fallegan disk. Skerið mangóið, avocadóið og kirsuberjatómatana niður í hæfilega stóra bita og raðið því á diskinn líka.
- Dreifið feta ostinum yfir, notið eins mikla olíu með og ykkur finnst gott að hafa (ég sigta hana smá frá svo það verður alltaf svolítið eftir í krukkunni).
- Steikið risarækjurnar á pönnu upp úr marineringunni þangað til þær eru eldaðar í gegn eða um leið og þær eru orðnar bleikar í gegn (passa að elda þær ekki of mikið), raðið þeim ofan á salatið og hellið marineringunni yfir líka.
- Rífið kóríander, skerið rauðan chilli og dreifið yfir salatið.
Vinó mælir með Muga White með þessum rétt.