Einfaldur og ljúffengur humar í hvítlauks smjöri
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 400 g Humar skelflettur
- 200 g Smjör (ósaltað)
- 2 Hvítlauksgeirar
- Salt og pipar
- Börkur af ½ sítrónu
- Fersk steinselja
- Baguette
Aðferð:
- Byrjað er á því að bræða smjörið í potti. Rífið hvítlauksrifin út í smjörið. Slökkvið undir smjörinu.
- Þerrið humarinn vel og setjið hann út í smjörið, setjið lokið á pottinn og leyfið humrinum að eldast hægt og rólega í heita smjörinu, ca 15 mín.
- Rífið börkinn af hálfri sítrónu út í smjörið með humrinum.
- Berið fram með baguette og ferskri steinselju.
Vinó mælir með Willm Pinot Gris Reserve með þessum rétt.