Hvítlauksrjómaosta fylltar döðlur vafðar inn í hráskinku
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- u.þ.b. 15-20 ferskar döðlur
- 150 g rjómaostur
- 2 hvítlauksgeirar
- 7-10 sneiðar hráskinka
- Þroskaður cheddar ostur
- Grænar ólífur
- Bláber
- Kex
Aðferð:
- Setjið rjómaostinn í skál, pressið hvítlauksrifin út í og blandið saman.
- Steinhreinsið döðlurnar án þess að taka þær alveg í sundur, fyllið döðlunar af rjómaosti (u.þ.b. 1 tsk inn í hverja döðlu).
- Vefjið ½ sneið af hráskinku utan um hverja döðlu.
- Raðið öllum hráefnunum saman á fallegan bakka og berið fram með þurru freyðivíni.
Vinó mælir með Lamberti Prosecco með þessum rétt.