Grillað eggaldin með fetaosti, tómötum og ólífum
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 1 eggaldin skorið í sneiðar
- u.þ.b. 3 msk ólífu olía
- salt og pipar eftir smekk
- Þurrkað basil krydd
- Þurrkað oregano krydd
- u.þ.b. 5-6 kirsuberja tómatar
- u.þ.b. 10 grænar ólífur
- u.þ.b. 2 msk fetaostur
Aðferð:
- Skerið eggaldinið niður í u.þ.b. 1 cm þykkar sneiðar
- Penslið það með olíu og kryddið.
- Skerið tómatana í helminga og raðið á grillbakka ásamt ólífunum, dreifið svolítið af olíu yfir og kryddið.
- Grillið eggaldinið í 3-4 mín á hvorri hlið og setjið tómatbakkann líka á grillið, hrærið reglulega í tómötunum.
- Raðið saman á disk og setjið feta ost yfir.
Vinó mælir með Pares Balta Mas Petit með þessum rétt.