Fyrir 4
Hráefni
45 ml Extra virgin ólívu olía
25 g smjör
1 x laukur, fínt skorinn
1 x sellerí, fínt skorið
1 x gulrót, fínt skorin
150 g beikon, smátt skorið
200 g svínahakk
200 g nautahakk
200 ml rauðvín
2 msk. tómatpúrra
200 ml grænmetissoð
400 g spaghetti – ferskt eða þurrt
Aðferð
- Hitið smjörið og olíuna saman á pönnu og bætið lauk, sellerí, gulrót og beikoni út á pönnuna og steikið við vægan hita í 10 mínútur.
- Bætið hakkinu út á pönnuna og steikið þar til kjötið hefur tekið á sig lit.
- Hækkið hitann undir pönnunni og bætið rauðvíninu út í og látið það gufa upp.
- Bætið tómatpúrru og hluta af grænmetissoði saman við.
- Lækkið hitann, setið lok yfir pönnuna og látið malla saman í 2 tíma. Mikilvægt að bæta grænmetissoði út í við og við og gæta að sósan þorni ekki upp.
- Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á pakka.
- Bætið spaghetti út á pönnuna og blandið sósunni saman við.
- Berið fram með ferskum parmesan osti.