Svínalund með geitaosta fyllingu
Uppskrift: Marta Rún Ársælsdóttir
Fylling:
Geitaostur (má nota hvaða ost sem er t.d camenbert)
Grilluð paprika
Sólþurrkaðir tómatar
Spínat
Valhnetur
Beikon
Aðferð:
Sjóðið spínat í 1 mínútu, kælið það undir köldu vatni og skerið það svo smátt og setjið í skál.
Skerið sólþurrkaða tómata, grillaðar paprikur og valhnetur smátt.
Blandið öllu saman í skál og bætið við olíu, salt og pipar eftir smekk.
Skerið svínalundina í tvennt. Skerið í miðjuna og hliðarnar og fletjið lundina út.
Setið fyllinguna ofan á lundina ásamt geitaostinum. Að lokum klemmið lundina saman og vefjið hana inn með beikon sneiðum.
Setjið 1 dós af kjúklingabaunum með smá olíu, pipar salti og rósmarín ofan í pott.
Leggið lundina ofan á kjúklingabaunirnar. Lokið pottinum og bakið við 180° gráður í 45 mínútur.
Takið lokið af pottinum síðustu 10 mínúturnar.
Berið fram með fersku salati.
Vinó mælir með Pares Balta Mas Petit með þessum rétt.