Fiskitacos með limesósu
Fyrir 3-4
Ég mæli með 3 litlum tortillum á mann eða 2 stærri tortillum
500 g þorskhnakki
1 egg
1 dl spelt
1 tsk taco explosion
1 tsk cumin
1 tsk cayenne pipar (má sleppa)
1 1/2 tsk salt
1 tsk pipar
1-2 msk smjör til steikingar
1 lime
Tortillur
Ólífuolía til steikingar
Philadelphia rjómaostur
1/4-1/2 hvítkál
1/4-1/2 hvítkál
1/4-1/2 ferskt rauðkál
Tabasco sósa eftir smekk
Ferskt kóríander eftir smekk
Salsa
2 tómatar
2-3 msk rauðlaukur
2 msk kóríander
2 avókadó
Safi úr 1/2 lime
Salt og pipar
Limesósa
1 dl Heinz majónes
1 dl sýrður rjómi
Safi úr 1-2 lime
1/2 tsk limebörkur
Salt og pipar
Aðferð:
- Skerið hvítkál og rauðkál í ræmur, hrærið og setjið í skál.
- Pískið egg í skál. Hrærið saman speltinu og kryddinu á disk. Skerið þorskinn í bita, veltið þeim upp úr egginu og síðan speltblöndunni.
- Steikið fiskinn á pönnu upp úr smjöri. Skerið eitt lime í báta og dreifið þá yfir fiskinn þegar eldunin er hálfnuð.
- Steikið tortillurnar upp úr smá olífuolíu þangað til að þær verða gylltar.
- Smyrjið rjómaosti á tortillurnar, dreifið kálinu, tómatsalsanu og fiskinum yfir.
- Toppið tacoið með limesósu og kóríander. Fyrir þá sem vilja hafa þetta örlítið sterkara þá er gott að bera þetta fram með tabasco sósu.
Salsa
- Skerið tómata (hreinsið fræin úr), rauðlauk og avókadó í litla bita og hrærið saman við kóríander og safa úr lime. Saltið & piprið eftir smekk.
Limesósa
- Hrærið saman majónesi og sýrðum rjóma ásamt rifnum lime berki, lime safa, salti og pipar.