Kjúklinga taco með kóríander lime maríneringu og avókadósósu
Uppskrift: Karen Guðmunds
Hráefni
- 1 pakki af kjúklingalundum
- 1 Pakki af tortillakökum (litlar)
Marínering fyrir kjúklingalundir
- 1 msk. olífuolía
- 2 lime, djús úr ferskri lime + börkur af einni lime
- 2 hvítlauksrif
- 1 msk hunang
- 2 msk. smátt saxaður kóriander
- Salt + pipar eftir smekk
Avókadó sósa
- 1 avókadó
- 1 hvítlauksrif
- 4 msk kóríander, smáttsaxað
- 4 msk grískt jógúrt
- 1 fersk lime, limesafi
- 1 msk. tabasco sósa
- 2 msk. ólífuolía
- 1/2 bolli vatn
- Salt + pipar eftir smekk
Salat til að hafa með
- 1/2 romane salat, skorið
- 1 bolli rauðkál
- 1 bolli gulrætur, skornar í litlar ræmur
- 1/2 bolli smátt saxaður blaðlaukur
- 4 msk, smátt saxað kóríander
- 2 lime, limedjús
- 1 msk. hunang
- 1 msk. ólífuolía
- Salt eftir smekk
Aðferð
- Byrjið á því að koma kjúklingalundunum fyrir í poka, mér finnst best að nota ziplock poka því það er hægt að loka þeim alveg. Einnig finnst mér best að búa til marínerínguna ofan í pokann. Setjið limesafa, limebörk, olífuolíu, hvítlauksrif, hunang, kóríander og salt og pipar ofan í pokann og hristið vel svo að maríneringin sameinist vel við kjúklinginn. Setjið inn í ísskáp í minnst klukkutíma.
- Í matvinnsluvél setjið avokadó, hvítlauksrif, grískt jógúrt, limesafa, tabacosósu, salt og pipar, olífuolíu og 1/2 bolla af vatni og þeytið vel saman. Ef ykkur finnst sósan ennþá vera of þykk, þá mæli ég með því að setja meira af vatni til að þynna sósuna aðeins.
- Skerið niður romane salat, gulrætur og blaðlauk í strimla og kóríander í stóra skál. Í minni skál, kreistið limesafa, olífuolíu, hunang ásamt salti og blandið saman. Hellið síðan yfir salatið og hrærið.
- Hitið grillið eða grillpönnu á miðlungsháum hita, setjið smá olíu á pönnuna áður og leyfið að hitna. Bætið síðan kjúklingalundunum á pönnuna og steikið í 4 til 5 mínútur á hvorri hlið.
- Berið fram með því að setja avakadó sósuna á tortillakökurnar, kjúklingin, salat og kreistið smá lime safa yfir. Til að toppa réttinn alveg, berið fram með ísköldum Coronabjór og limesneiðum.