Laxa Taco með avókadó salsa
Uppskrift: Linda Ben
Hráefni:
- 700 g lax
- 2 hvítlauksrif
- 1 tsk cumin
- vel af salti og pipar
- 1 tsk paprika
- ½ tsk kóríander krydd
- ¼ tsk cajun krydd (má sleppa)
- 1 msk ólífuolía
- Taco skeljar
Aðferð:
Skerið roðið af laxinum og skerið fiskinn í frekar smáa bita, leggið í skál eða fat.
Kryddið fiskinn mjög vel og hellið svolítilli olíu yfir hann, blandið öllu vel saman svo hver einasti laxabiti er þakinn í kryddi. Látið marinerast í eins langan tíma og er í boði, (gott að miða við allavega 30 mín en það algjör snilld að láta marinerast í sólahring) en það sleppur líka að láta fiskinn marinerast bara á meðan hvítlauks lime sósan og avocadó salsað er útbúið.
Steikið fiskinn á pönnu þangað til hann er eldaður í gegn.
Hitið taco skeljanar í ofni (eða örbylgjuofni) þar til þær eru orðnar heitar.
Hvítlauks lime sósa:
2 msk majónes
2 msk 18% sýrður rjómi
1 hvítlauksrif
Börkur af 1 lime
Safi úr ½ lime
Aðferð:
Blandið saman majónesi og sýrðum rjóma.
Pressið hvítlauksrif út í og rífið börkinn af lime út í. Kreistið hálfa lime út í og blandið öllu saman.
Hægt að setja smá salt og pipar ef vill.
Það er virkilega gott að smyrja taco skelina að innan með þessari sósu.
Avókadó salsa
2-3 avókadó
½ rauðlaukur
1 hvítlauksrif
Safi úr ½ lime
Góð lúka ferskt kóríander
Aðferð:
Skerið avókadóið í bita og setjið í skál.
Skerið rauðlaukinn smátt niður og bætið honum í skálina.
Pressið hvítlaukinn út á og kreistið lime.
Setjið kóríander út á og blandið öllu varlega saman.