Trufflu Bernaise sósa
Hráefni
4 eggjarauður
400 g brætt smjör
2-3 tsk bearnaise essens (magn eftir smekk)
½ tsk truffle olía (fæst í flestum betri stórmörkuðum)
u.þ.b. 2 tsk estragon (magn eftir smekk)
Pipar (magn eftir smekk)
Salt með trufflum fæst til dæmis í Dimmverslun
Aðferð
- Brjótið eggin og aðskilja eggjahvítu og eggjarauður.
- Bræðið smjörið á vægum hita.
- Þeytið eggjarauðurnar varlega í nokkra stund í hrærivél/rafmagnsþeytara þar til þær eru orðnar léttar, ljósar og mynda borða. (takið þeytarann upp reglulega og teiknið 8 snögglega með því sem lekur af þeytaranum ofan í skálinni. Ef það tekst að teikna áttu og hún sést greinilega í örfáar sek. þá eru eggjarauðurnar tilbúnar).
- Hellið smjörinu út í eggjarauðurnar í lítilli bunu með þeytarann rólega í gangi.
- Setjið bearnaise essens út í sósuna og hrærið saman, bætið því næst estragon út í og hrærið saman.
- Bætið trufflu olíu út í og hrærið saman.
- Saltið og piprið sósuna eftir smekk. Gott að byrja á litlum skammti og auka svo eftir smekk.