Yljandi ramen súpa með rifnum kjúklingalærum og vorlauk
Fyrir 2-3
Hráefni
Kjúklingalæri (skinn & beinlaus), 400 g
Kókosmjólk, 400 ml
Ferskar ramen núðlur, 2 pakkar
Vatn, 300 ml
Massaman karrýmauk, 30 g
Límóna, 1 stk
Vorlaukur, 2 stk
Gulrót, 60 g
Blaðlaukur, 50 g
Kóríander, 6 g
Púðursykur, 2 msk
Kjúklingakraftur (Oscar), 2 tsk
Karrý de lux, 2 msk / Pottagaldrar
Túrmerik, 1 tsk
Engifermauk, 1 tsk / Eða 1 tsk rifinn ferskur engifer
Steiktur skalottlaukur, 30 g
Aðferð
- Forhitið ofn í 180C með blæstri.
- Veltið kjúklingalærunum upp úr olíu, 1 msk af Karrý de lux og svolitlu salti. Raðið kjúklingalærunum á ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni í 30-35 mín.
- Sneiðið hvíta og ljósgræna partinn af vorlauknum (geymið dekkri partinn), skerið gulrót í tvennt langsum og svo í skífur og skerið blaðlaukinn í tvennt langsum og svo í þunna strimla.
- Hitið smá olíu í potti og steikið vorlaukinn, gulræturnar og blaðlaukinn við miðlungshita þar til gulræturnar eru byrjaðar að mýkjast.
- Bætið karrýmauki, kjúklingakraft, engifer, restinni af Karrý de lux og túrmerik út í pottinn og steikið í smástund.
- Bætið kókosmjólk, 300 ml af vatni og púðursykur út í pottinn og látið malla rólega í um 10 mín. Smakkið til með salti og góðri kreistu af límónusafa.
- Lækkið hitann á pottinum. Losið ramen núðlurnar varlega í sundur með höndunum og bætið út í pottinn. Látið núðlurnar hitna í gegn og mýkjast í nokkrar mín.
- Saxið kóríander og sneiðið dekkri partinn af vorlauknum í þunnar sneiðar. Rífið kjúklinginn í sundur með 2 göfflum.
- Skiptið núðlunum og súpunni á milli skála og toppið með rifnum kjúkling, steiktum skalottlauk, vorlauk og kóríander og kreistið smá límóusafa yfir