Hugmynd að huggulegu vetrarkvöldi
Þrátt fyrir hita síðustu vikna og snjóleysi þá minnir vetur konungur okkur á að hann er ekki alveg búinn að segja sitt síðasta. Það er jú enn febrúar. Tækifærin til að hafa það gott eru ólík eftir árstíðum, á sumrin eru útivera, garðveislur og grillmáltíðir aðalmálið, en á veturnar er upplagt að njóta lífsins innandyra.
Ef veður og vindar leyfa er þó gott að byrja daginn á frískandi útiveru, göngutúr um útivistarsvæði, jafnvel í skóglendi þar sem ólíklegra er að vindar blási. Þegar kinnar eru orðnar rjóðar er gott að koma heim í vel kyntan kofann og hafa það notalegt; eldheitt bað eða að hjúfra undir þykkasta teppinu á heimilinu og ná hitanum upp.
Heitt súkkulaði og kringlur eru ómissandi þegar fullkomna á kósýstundina. Fortíðarþráin vaknar til lífsins þegar við dýfum mjúkum, jafnt sem hörðum kringlum í rjúkandi heita súkkulaðið. Svokallað „skíðakakó“ frískar upp á tilefnið og vermir enn frekar.
Heitt Strohsúkkulaði
Hráefni fyrir tvö glös:
100 ml af rjóma (þeyttur)
3 matskeiðar sykur
3 tsk vanillusykur
1 tsk Stroh 60 romm
4 matskeiðar kakó
400 ml af mjólk
40 g af súkkulaði (dökkt)
2 til 4 cl Stroh 60 romm
Aðferð:
- Þeytið rjóma með 1 msk sykri og 1 tsk vanillu sykri. Rétt áður en rjóminn er orðinn stíf þeyttur, bætið við 1 tsk af Stroh 60 rommi úti.
- Blandið kakó, mjólk og restinni af sykrinum og vanillusykrinum í pott og hrærið saman við vægan hita.
- Takið pottinn af hitanum og bætið 2-4 cl af Stroh 60 rommi úti pottinn og hrærið.
- Hellið kakó blöndinni í bolla eða glas og bætið svo rjómanum ofan á. Fallegt að skreyta með smá púðursykri.
Til þess að byggja upp orku fyrir kvöldið, þá svíkur kaffið engan. Við lumum á ýmsum brögðum til að gera kaffið enn ljúfara og betra til að hita kroppinn. Galliano, kaffi og rjómi yljar og kætir í lok dags.
Galliano kaffi
Hráefni í einn drykk:
1 bolli kaffi
50 ml Galliano líkjör
Þeyttur rjómi
Súkkulaði spænir
Njótið