Basil Gimlet
Hráefni:
3cl ROKU gin
3cl límónusafi
3cl Sykursíróp*
6 basil lauf
Aðferð:
Aðferð: Setjið gin og basil lauf í kokteilhristara, merjið laufin saman við ginið. Kreistið ½ límónu út í, setjið sykursíróp og klaka í kokteilhristarann og hristið vel og kröftuglega saman. Hellið í gegnum sigti í kokteilglas.
Sykursíróp
Setjið í pott vatn og sykur – í jöfnum hlutföllum. Látið suðuna koma upp og slökkvið þá undir og látið kólna.