Bitter & vodka
Hráefni
Appelsínusafi, 6 cl
Galliano Bitter, 4,5 cl
Russian standard vodka, 3 cl
Sítrónusafi, 1,5 cl
Sykursíróp, 1,5 cl
Aquafaba*, 3 cl
Appelsínubátur til skrauts
Aðferð
*Aquafaba er vökvinn úr dós af kjúklingabaunum en hann má nota alveg eins og eggjahvítur (3 cl Aquafaba = 1 eggjahvíta) og er frábært hráefni í vegan kokteila.
Setjið öll hráefnin í kokteilhristara og hristið kröftuglega í 15 sek. Bætið við klökum og hristið þar til kokteilhristarinn er ískaldur viðkomu. Síið í hátt glas og skreytið með appelsínubát.