Bláberja Prosecco Mojito
Hráefni:
4 cl. Brugal Blanco romm
4 cl. ferskur límónusafi (safi úr 2-3 límónum)
1 msk. hrásykur
1 fl. Lamberti Prosecco
Fersk Mynta
Fersk bláber
Aðferð:
- Merjið bláber og myntu í botninn á glasinu, bætið hrásykri saman við ásamt límónusafanum og hrærið í. Gott að láta bláberin og myntuna liggja aðeins í límónusafanum og hrásykrinum.
- Fyllið glasið með klaka og hellið romminu út í.
- Fyllið upp með Prosecco og skreytið með myntu og bláberjum.