Gin Fizz
Uppskrift: Hildur Rut
Hráefni:
5 cl Martin Miller’s gin
2,5 cl safi úr sítrónu
2,5 cl sykursíróp (eða hlynsíróp)
1 eggjahvíta
Klakar
5 cl sódavatn
Aðferð:
- Hellið gini, safa úr sítrónu, sykursírópi og eggjahvítu í kokteilahristara og hristið vel í 15 sekúndur.
- Bætið nokkrum klökum saman við (mér finnst best að hafa þá stóra) og hristið í 30 sekúndur.
- Hellið í glas og bætið sódavatninu rólega saman við. Skreytið með sítrónu.
Sykursíróp
- Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
- Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
- Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.