Uppskrift Marta Rún Femme
Innihald (einn drykkur)
3 cl vodka (sirka eitt skot)
1.5 cl Cointreau líkjör
3 cl af trönuberjasafa
Safi úr 1/2 lime.
ca. þumall af engiferi og sneið til að skreyta
Aðferð:
- Byrjið á því að fylla glasið með klökum til að kæla það.
- Setjið í hristara hráefnin og fyllið upp með klökum og hristið, hristið og hristið.
- Fjarlægið klakana úr glasinu og hellið svo úr hristaranum ofan í glösin en sigtið klakana frá.
- Skerið þunna sneið af engiferinu og notið sem skraut.
Uppskrift Marta Rún hjá Femme.is