Margarita með jalapeno og kóríander
Hráefni:
- 4 cl Sauza tequila
- 2cl Cointreau
- 2 cl limesafi
- 2 jalapeno
- 2 greinar kóríander
- Salt
- Chilli flögur
- Klaki
Aðferð:
- Kælið glasið með klökum á meðan drykkurinn er hristur.
- Skerið niður jalapenjo og setjið út í glasið ásamt tequila og kóríander. Gott að láta þessa blöndu standa í ísskáp í ca 1 klst
- Setjið salt og chilli flögur í undirskál, vætið brúnina á glasinu með lime og dýfið glasinu ofan í saltið.
- Blandið Cointreau og lime safanum saman með klaka í hristara og hristið vel og hellið svo drykknum í glasið.