Uppskriftin miðast við 1 drykk
Spicy mangó jalapenó margaríta
60 ml tequila
30 ml cointreau
Safi úr 1 lime
120 ml mangó safi
¼ jalapenó + 1 heilt sem skraut
cajun krydd + salt + sykur fyrir glasbrún
Klakar
Aðferð:
Setjið tequila og cointreau í kokteil hristara, bætið jalapenó bita út í og kremjið hann vel saman við.
Kreystið safann úr limeinu ofan í kokteilhristarann, bætið mangó safanum út í og nokkrum klökum.
Hristið vel saman.
Bleytið glasbrúnina með lime safa, blandið saman cajun kryddi, salti og sykri í undirskál,
dýfið glasinu ofan í blönduna svo kryddið festist á glasbrúninni.
Setjið nokkra klaka ofan í glasið og hellið drykknum í glasið.