Willm Gewurtztraminer Reserve 2016
Vínótek segir;
Vínhúsið Willm er á vínleiðinni eða Route du vin á milli Strassborgar og Colmar í Alsace í Frakklandi, nánar tiltekið í smábænum Barr. Willm-fjölskyldan, sem þá rak veitingahús í Barr, stofnaði víngerðina 1896 og náði fljótt undraverðum árangri í útflutningi.
Þetta Gewurztraminer vín hefur tæran, ljósgulan lit, þægilega angan af blómum, rósabúnt, sætum ferskjum og ástaraldinávexti, mjúkt og ferskt í munni, þægilega þurrt.
2.599 krónur. Frábær kaup. Með austurlenskum réttum, indverskum og taílenskum.